25. mars 2026

Aukið framboð íbúða lykillinn fremur en hærri ríkisframlög

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Aukið framboð íbúða lykillinn fremur en hærri ríkisframlög

Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn til velferðarnefndar Alþingis um frumvarp sem felur í sér hækkun stofnframlaga ríkisins til almennra íbúða. Í frumvarpinu er lagt til að hámarkshlutfall framlaga hækki úr 18% í allt að 23%, auk þess sem viðbótarframlög hækki og nái til fleiri verkefna, meðal annars umbreytingar atvinnuhúsnæðis í íbúðir.

SA lýsa skilningi á markmiðum frumvarpsins, einkum í ljósi erfiðs fjármögnunarumhverfis vegna hás vaxtastigs og hækkandi byggingarkostnaðar. Samtökin leggja þó áherslu á að meginlausn húsnæðisvandans felist í almennum aðgerðum sem styðji við aukið framboð íbúða í samræmi við þarfir markaðarins, frekar en auknum ríkisstuðningi.

Í umsögninni segir: „Byggja þarf meira, hraðar og hagkvæmar í takt við þarfir landsmanna.“ SA benda á að íbúðaverð hafi hækkað hraðar en laun undanfarinn áratug, sem undirstriki mikilvægi þess að stjórnvöld torveldi ekki uppbyggingu.

Þá gagnrýna samtökin að frumvarpið sé talið án kostnaðar fyrir ríkissjóð. Að mati SA stenst sú fullyrðing ekki, þar sem aukin stofnframlög hljóti að leiða til aukinna útgjalda óháð því hvort gert hafi verið ráð fyrir þeim í fjárlögum eða ekki.

Samtökin leggja einnig áherslu á að draga þurfi úr regluverksbyrði, auka lóðaframboð og stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum. Að þeirra mati væri „nær að ráðast að rót vandans“ með því að hemja útgjöld ríkisins og lækka álögur. Þannig væri unnt að stuðla að hagkvæmari fjármögnun fyrir allan íbúðamarkaðinn.

„Að lokum vilja SA árétta að húsnæðismál eru meðal mikilvægustu velferðar- og efnahagsmála samtímans og skipta sköpum fyrir lífskjör almennings. Uppbygging húsnæðis er ein af grundvallarforsendum þess að hér byggist upp samkeppnishæft atvinnulíf og gott samfélag.“

Samtök atvinnulífsins