1 MIN
Breytingarnar muni hafa jákvæð efnahagsleg áhrif
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um áform stjórnvalda um lagasetningu sem miðar að því að flýta uppbyggingu raforkuinnviða og einfalda regluverk. Í umsögninni lýsa samtökin yfir skýrum stuðningi við áformin og telja þau bæði tímabær og nauðsynleg í ljósi þeirra tafa sem orðið hafa í uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa raforku á undanförnum árum.
SA benda á að núverandi lagaumgjörð og leyfisferlar hafi dregið úr fyrirsjáanleika og tafið mikilvægar framkvæmdir með neikvæðum áhrifum á afhendingaröryggi, orkuskipti og fjárfestingar. Samtökin leggja áherslu á að hraða þurfi framkvæmdum og tryggja að ágreiningur um eignarnám eða bætur stöðvi ekki sjálfkrafa verkefni, enda séu réttindi landeigenda tryggð með fullnægjandi hætti.
Í umsögninni er jafnframt bent á að breytingarnar muni hafa jákvæð efnahagsleg áhrif, meðal annars með auknu orkuöryggi, lægri kostnaði og betri skilyrðum fyrir fjárfestingar og grænar lausnir. SA leggja þó áherslu á að við útfærslu laganna verði tryggt jafnvægi milli hraða og vandaðs undirbúnings, auk skýrra reglna um bætur.