1 MIN
Fyrirhugaðar breytingar fagnaðarefni
„Breytingarnar eru djarfar en afar jákvæðar. Einföldun og aukin skilvirkni eru stórt skref til að bæta samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. SA leggja þó áherslu á að markmið um einföldun verði að veruleika og að eftirlit tveggja stofnana leiði ekki til aukins flækjustigs í ákveðnum tilvikum,“ segir í umsögn SA um frumvarp um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum sem birt var á Samráðsgátt stjórnvalda 26. janúar. Markmið frumvarpsins er að auka samræmi, einfalda fyrirkomulag og bæta skilvirkni eftirlits.
SA hafa um árabil kallað eftir breytingum á skipulagi heilbrigðiseftirlits. Núverandi kerfi er flókið og kostnaðarsamt. Starfandi eru níu heilbrigðiseftirlitssvæði með eigin gjaldskrár og heyra þau undir tvær ríkisstofnanir, Umhverfis- og orkustofnun og Matvælastofnun, sem aftur heyra undir sitt hvort ráðuneytið. Auk þess sinna stofnanirnar sjálfar eftirliti með sérstökum gjaldskrám. Skipting verkefna á milli ellefu aðila hefur leitt til ósamræmis og óhagkvæmni, sérstaklega fyrir fyrirtæki sem starfa á fleiri en einu eftirlitssvæði og hafa þurft að bregðast við ólíkum kröfum.
Í júlí 2024 sendi Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) Íslandi formlegt áminningarbréf þar sem gerð var krafa um skilvirkara eftirlitskerfi í samræmi við EES-reglur. Að mati SA er frumvarpið ekki aðeins viðbragð við þeim kröfum heldur einnig mikilvægt skref til að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra framleiðenda á EES-markaði.
SA telja brýnt að tryggja einfalt og skilvirkt eftirlitsumhverfi, en leggja jafnframt áherslu á að breytingarnar leiði raunverulega til einföldunar og skapi ekki nýtt flækjustig.