27. maí 2025

Hringferð SA hefst í næstu viku

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hringferð SA hefst í næstu viku

Útflutningsgreinar í brennidepli.

Samtök atvinnulífsins hefja nýtt starfsár með öflugri hringferð um landið þar sem megináhersla er lögð á útflutningsgreinar og möguleika til vaxtar og verðmætasköpunar. Forsvarsfólk fyrirtækja og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir til hádegisverðar og vinnufundar á hverjum stað.

Á fundunum verður fjallað um helstu áskoranir í atvinnulífinu, hvernig stjórnvöld geta stutt við vöxt og þróun og hvaða tækifæri eru til að auka útflutningstekjur Íslands – sem er lykillinn að bættum lífsgæðum.

Fundarstaðir og dagsetningar:

  • 3. júní – Reykjanesbær
  • 4. júní – Sauðárkrókur
  • 5. júní – Akureyri
  • 11. júní – Ólafsvík
  • 12. júní – Þorlákshöfn
  • 13. júní – Reykjavík
  • 23. júní – Reyðarfjörður
  • 24. júní – Höfn
  • 26. júní – Ísafjörður

Á hverjum fundi verður gestum boðið að taka þátt í umræðum og svara spurningum um áskoranir á þeirra atvinnusvæði, aðgerðir stjórnvalda og leiðir til að efla útflutning.

Skráning fer fram hér á heimasíðu SA.

Samtök atvinnulífsins