16. maí 2025

Jón Ólafur nýr formaður Samtaka atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Jón Ólafur nýr formaður Samtaka atvinnulífsins

Jón Ólafur Halldórsson er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins. Tilkynnt var um kjörið á aðalfundi samtakanna í gær. Kosningaþátttaka var 73,1% og hlaut Jón Ólafur tæplega 98% atkvæða.

Jón Ólafur hefur starfað í þágu atvinnulífsins allt frá árinu 2015, þegar hann tók sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins. Hann hefur setið í framkvæmdastjórn samtakanna frá árinu 2018. Jón þekkir vel til þess að starfa sem formaður í Húsi atvinnulífsins, en hann sat í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu frá árinu 2017 og var formaður SVÞ á árunum 2019 til 2025.

„Það er mikill heiður að njóta trausts til að leiða SA, heildarsamtök atvinnurekenda á Íslandi,“ segir Jón Ólafur. „Hlutverk Samtaka atvinnulífsins er bæði fjölbreytt og brýnt. SA hefur um árabil verið mikilvæg rödd fyrir fyrirtæki landsins, bæði hvað varðar hagsmunagæslu og kjarasamningsgerð, en ekki síður í stefnumótun fyrir atvinnulífið.

Það eru blikur á lofti í alþjóðamálum og því brýnna en nokkru sinni að tryggja íslenskum fyrirtækjum góð starfsskilyrði. Við í Samtökum atvinnulífsins erum, líkt og áður, tilbúin til samstarfs við stjórnvöld og almenning um að styrkja stoðir samfélagsins – alltaf með hagsmuni atvinnulífsins í forgrunni. Fyrirtækin, ásamt fjölskyldunum, eru hornsteinar samfélagsins.“

Það er mikill heiður að njóta trausts til að leiða SA.

Jón Ólafur er véltæknifræðingur að mennt, en hefur jafnframt lokið MBA-námi frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál fyrirtækja. Einnig hefur hann lokið meistaraprófi (MS) í viðskiptafræði frá sama skóla, með áherslu á stefnumörkun og stjórnun fyrirtækja. Þá hefur hann lokið AMP-námi við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona.

Jón Ólafur hefur unnið við stjórnunarstörf í íslensku atvinnulífi í um 30 ár. Hann starfaði hjá Olís í 27 ár, þar af sem forstjóri í sjö ár. Frá árinu 2021 hefur hann sinnt ýmsum ráðgjafa- og stjórnarstörfum.

Jón Ólafur er fæddur árið 1962. Hann er kvæntur Guðrúnu Atladóttur, innanhússarkitekt, og eiga þau saman þrjú börn og fimm barnabörn.

Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, á Iceland Parliament Hotel í gær.

Samtök atvinnulífsins