1 MIN
Myndasafn: Tækifæri og uppbygging á Suðurlandi
Þann 12. júní heimsóttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins Þorlákshöfn og nærliggjandi svæði sem hluti af árlegri hringferð samtakanna um landið.
Ferðin hófst með heimsókn til landeldisfyrirtækisins First Water að Laxabraut í Þorlákshöfn. Þar kynntu gestgjafar starfsemi fyrirtækisins og ræddu við fulltrúa SA um tækifæri og áskoranir sem fylgja starfsemi í sjávarútvegi og fiskeldi.
Að því loknu fór fram vinnufundur í Versölum á Þorlákshöfn. Þar komu saman fulltrúar fyrirtækja og sveitastjórnarfólk á svæðinu til að ræða stöðu atvinnulífs á svæðinu, áskoranir í rekstri og uppbyggingartækifæri. Á fundinum áttu sér stað líflegar umræður í vinnuhópum þar sem sérstaklega var horft til möguleika Þorlákshafnar og nærsveita í útflutningsgreinum – enda bærinn vel í sveit settur með öfluga hafnaraðstöðu.
Eftir hádegi var haldið í heimsókn til Icelandic Water Holdings sem framleiðir og selur íslenskt vatn á erlenda markaði. Þar var rætt um útflutningsstarfsemina, vaxandi eftirspurn og tækifæri tengd nýtingu hreins grunnvatns og sjálfbærum rekstri.
Deginum lauk með heimsókn í MAR Seafood í miðbæ Selfoss þar sem Tómas Þóroddsson tók á móti hópnum. Hann kynnti nýjustu framkvæmdir á svæðinu og framtíðarsýn fyrir miðbæjarkjarnann á Selfossi.
Myndir frá deginum má sjá hér að neðan.


















































