1 MIN
Myndasafn: Virkt samtal í Reykjavík
Hringferð Samtaka atvinnulífsins stoppaði í Reykjavík föstudaginn 13. júní. Dagurinn hófst með heimsókn til Alvotech þar sem kynnt var starfsemi fyrirtækisins og nýsköpun á sviði líftæknilyfja.
Í hádeginu fór fram vinnufundur á Grand Hótel. Fundurinn var vel sóttur og þátttakendur tóku virkan þátt í líflegum og uppbyggilegum umræðum. Fram komu fjölmörg áhugaverð sjónarmið og hugmyndir sem munu nýtast vel í áframhaldandi vinnu á þessu starfsári sem helgað er útflutningsgreinum.
Myndir frá fundinum má sjá hér að neðan.








































