26. maí 2025

Norræn samtök atvinnulífsins: Stíga þarf djörf skref

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Norræn samtök atvinnulífsins: Stíga þarf djörf skref

Í sameiginlegri yfirlýsingu í aðdraganda fundar forsætisráðherra Norðurlandanna, leggja norræn samtök atvinnulífsins áherslu á nauðsyn þess að efla samkeppnishæfni, græna umbreytingu og öryggi með samstilltu átaki stjórnvalda og atvinnulífs. Samtökin kalla eftir því að Norðurlöndin stígi fram sem leiðtogar í Evrópu þegar kemur að nýsköpun, sjálfbærni og aukinni seiglu gagnvart áskorunum framtíðarinnar.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel og formaður SI og varaformaður SA, voru fulltrúar íslensks atvinnulífs á fundi með norrænu ráðherrunum í Paimio í Finnlandi.

Forsætisráðherra Íslands: Kraftmikil verðmætasköpun er lykilatriði

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði fulltrúum SA fyrir samtalið og þátttökuna í fundinum. ​​„Það var frábært að ná samtali við atvinnulífið á þessum sumarfundi norrænna forsætisráðherra. Við ræddum meðal annars tækifæri til að auka samstarf hins opinbera og einkaaðila þegar kemur að því að styrkja áfallaþol og varnarviðbragð samfélagsins. En kraftmikil verðmætasköpun er líka lykilatriði almennt til að efla öryggi og varnir í Evrópu. Í því samhengi ræddum við meðal annars atvinnustefnu, innviðauppbyggingu og einföldun regluverks, vinnu gegn gullhúðun EES-gerða og mikilvægi þess að samstarf EES/EFTA-ríkja við Evrópusambandið raskist ekki vegna væringa í alþjóðaviðskiptum,“ segir forsætisráðherra. „Styrkur Norðurlanda er norræna módelið. Það skapar traust og öryggi í samfélögum okkar. Ég lagði áherslu á að Norðurlöndin byggðu áfram á þessum styrkleikum með þéttu samstarfi ríkis, fyrirtækja og launafólks. Það á ekki síst við núna með vaxandi vægi öryggis- og varnarmála í okkar heimshluta.

Þó að Ísland sé herlaust land þá erum við í lykilstöðu í Norður-Atlantshafi. Ég vil að Ísland taki virkan þátt og veiti forystu í öryggis- og varnarmálum í okkar nærumhverfi. Með því að styrkja getu Íslands til að vinna með bandalagsríkjum okkar og með því að leiða saman önnur ríki á svæðinu og vinaþjóðir okkar í Evrópu og vestanhafs. Ég fagna því til dæmis að forsætisráðherrar Færeyinga og Grænlands hafi tekið þátt á fundinum í dag. Það skiptir okkur máli og við viljum efla samstarfið við þessi ríki.“

Traust samstarf og áhersla á samráð

„Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum, bæði efnahagslegum og hvað varðar öryggi. Með samstilltu átaki Norðurlanda getum við haft afgerandi áhrif á þróun mála í Evrópu. Atvinnulífið er reiðubúið að leggja sitt af mörkum með hugviti, fjárfestingum og lausnum sem skapa verðmæti og sjálfbærni,“ segir Sigríður Margrét, framkvæmdastjóri SA. „Norðurlöndin byggja á traustu samstarfi. Samtök atvinnulífsins og forverar þeirra hafa hátt í hundrað ár verið traustir samstarfsaðilar. Við byggjum á því nú þegar við horfum til framtíðar í breyttum heimi."

„Öflugt og víðtækt norrænt samstarf skiptir íslenskt atvinnulíf miklu máli. Í sameiningu eru Norðurlöndin öflugur málsvari þeirra gilda sem við stöndum fyrir og sterk rödd Norðurlanda hefur mikil áhrif bæði innan Evrópu og um heim allan. Það var því einkar ánægjulegt að fá tækifæri til að eiga opin og heiðarleg skoðanaskipti um þau mál sem efst eru á baugi við forsætisráðherra Norðurlandanna í Paimio í Finnlandi í dag. Þetta er einstakur vettvangur fyrir okkur til að leggja stjórnvöldum lið í því óvissuástandi sem ríkir um þessar mundir, og sýnir skýrlega þá áherslu sem stjórnvöld leggja á samráð og samtal við fulltrúa iðnaðar og atvinnulífs,“ segir Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, formaður SI og varaformaður SA.

Yfirlýsingin byggir á fjórum meginstoðum:

1. Nýsköpunardrifið hagkerfi

Samtökin hvetja til aukinna fjárfestinga í rannsóknum, þróun og nýsköpun – bæði á landsvísu og á evrópskum vettvangi. Lagt er til að nýta skattalega hvata og annað sem hvetur til virkrar nýsköpunar, draga að hátæknifyrirtæki og efla alþjóðlegt samstarf meðal háskóla, vísindamanna og frumkvöðla. Samstarf um lykiltækni er sérstaklega brýnt til að vinna gegn vaxandi framleiðnivanda í Evrópu.

2. Græn umbreyting sem samkeppnisforskot

Norrænt atvinnulíf stendur sameinað að baki metnaðarfullum markmiðum um kolefnishlutlaus hagkerfi. Skilvirkt leyfisferli, aukið aðgengi að fjármagni og sameiginleg iðnaðarstefna eru lykill að því að styrkja græna fjárfestingu og byggja upp traust almennings. Norræni raforkumarkaðurinn gegnir þar lykilhlutverki sem grunnur að orkuöryggi og hagkvæmni.

3. Færri hindranir, meiri vöxtur

Samtökin beina sjónum að þörf fyrir afnám innri markaðshindrana, bæði innan Norðurlanda og Evrópu. Þau leggja til fimm ára áætlun um einföldun regluverks og skýra ábyrgð á landsvísu við innleiðingu ESB-löggjafar.

4. Öryggi með aukinni tengingu og samvinnu

Öryggi byggist á víðtæku samstarfi, bæði innan NATO og ESB/EES, þar sem einkageirinn gegnir lykilhlutverki í viðbúnaði. Fjárfesting í birgðum, aukin samvinna um áhættumat og öflugri innviðir, s.s. rafmagns- og gagnaflutningskerfi, eru nauðsynlegir fyrir viðnámsþol og efnahagslegan og hernaðarlegan hreyfanleika. Uppbygging Úkraínu er leið til að styðja við tengsl landsins við ríki Evrópu.

„Tíminn til aðgerða er núna,“ segir í yfirlýsingunni sem hægt er að sjá hér. Norðurlöndin geti haft afgerandi áhrif á framþróun Evrópu með samstilltum og djörfum skrefum. Norræn samtök atvinnulífsins lýsa sig reiðubúin til að leggja fram tillögur og taka þátt í framkvæmd.

Samtök atvinnulífsins