1 MIN
SA leggjast gegn varanlegri heimild um nýtingu séreignarsparnaðar
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem lagst er gegn frumvarpi sem kveður á um varanlega heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.
Í umsögn SA er bent á að sambærileg heimild hafi verið tekin upp árið 2014 sem tímabundin aðgerð í kjölfar fjármálahrunsins til að bregðast við mikilli skuldsetningu heimila. Nú sé hins vegar lagt til að festa úrræðið í sessi til frambúðar auk þess sem skilyrði verði rýmkuð.
Samtökin leggja áherslu á að viðbótarlífeyrissparnaður sé kjarasamningsbundinn og heyri undir forræði aðila vinnumarkaðarins. Því telji SA óeðlilegt að ríkisvaldið hlutist til um ráðstöfun hans, sérílagi með ívilnandi aðgerðum til handa einstaka hópum. Slík íhlutun geti grafið undan markmiðum um sjálfbær og ábyrg ríkisfjármál til lengri tíma, enda var viðbótarlífeyrissparnaður að hluta til viðleitni til að hver kynslóð stæði að mestu á eigin fótum og legði samhliða sitt af mörkum til samneyslunnar við töku ellilífeyris. Jafnframt gæti aukið umfang aðgerðanna birst í hækkandi húsnæðisverði og frekara veðrými sem hefði áhrif til aukinnar einkaneyslu og eftirspurnar eftir lánsfé, sem gæti kallað á hert aðhald peningastefnunnar.
SA styðja valfrelsi einstaklinga í sparnaði en telja að ef stjórnvöld vilji hvetja til húsnæðissparnaðar sé eðlilegra að gera það með öðrum, almennari leiðum til dæmis með skattalegum hvötum á sérstökum sparnaðarreikningum.
Í ljósi framangreinds leggjast samtökin gegn samþykkt frumvarpsins.