1 MIN
Samtök atvinnulífsins ítreka beiðni um þríhliða samráðsvettvang
Samtök atvinnulífsins hafa sent forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra bréf þar sem þau lýsa vaxandi áhyggjum af stöðu efnahagsmála og ítreka beiðni sína um þríhliða samráðsvettvang. Í bréfinu, dagsettu 20. mars, er bent á að fyrra erindi sem SA sendi forsætisráðherra í janúar síðastliðnum hafi enn ekki verið svarað.
SA benda á að frá því að fyrra bréf var sent hafi staðan versnað, verðbólga hafi aukist og vaxtalækkunarferli Seðlabankans stöðvast með ákvörðun peningastefnunefndar um 25 punkta hækkun stýrivaxta og að hætta sé á frekari hækkunum. Þá séu vaxandi líkur á að forsendur gildandi kjarasamninga standist ekki, sem geti skapað viðkvæma stöðu á vinnumarkaði síðar á árinu.
Brýnt að ná breiðri sátt um aðgerðir
Samtökin leggja áherslu á að komið verði á fót þríhliða samráðsvettvangi stjórnvalda, atvinnulífs og verkalýðshreyfingar til að ná breiðri sátt um aðgerðir gegn verðbólgu og til að bæta rekstrarskilyrði fyrirtækja. Núverandi samráð, meðal annars innan þjóðhagsráðs, dugi ekki til að takast á við þann bráðavanda sem uppi er.
Í bréfinu er einnig gagnrýnt að launaþróun hér á landi hafi farið fram úr því sem sést í nágrannaríkjum og að hið opinbera hafi verið leiðandi í þeirri þróun. SA telja brýnt að sporna við launaskriði, sérstaklega hjá hinu opinbera, og bæta umgjörð vinnumarkaðarins.
SA leggja til aðgerðir
Samtökin leggja til aðgerðir á borð við að stöðva útgjaldavöxt hins opinbera, einfalda regluverk, lækka skuldir ríkisins með sölu eigna, styðja við orkuöflun og álögum verði létt af atvinnulífi. Þá vara þau við að frekari kostnaðarhækkanir geti aukið verðbólguþrýsting.
„Sú óheillaþróun sem við stöndum frammi fyrir og birtist okkur í vaxandi verðbólgu, hækkandi vöxtum og auknu atvinnuleysi, ásamt óvissu um hækkandi verð á olíuvörum, kallar á mun breiðara samtal og afgerandi aðgerðir,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. „Við þurfum að styrkja samkeppnishæfni landsins og leggja grunn að öflugu hagvaxtarskeiði á sama tíma og við náum tökum á verðbólgunni.“