1 MIN
Félagsdómur staðfestir túlkun SA
Félagsdómur hefur með dómi sínum í dag staðfest með hvaða hætti kauptaxtar kjarasamninga skulu hækka 1. janúar 2026. VR taldi að kauptaxtar ættu að taka meiri hækkun en leiða mátti af skýrum ákvæðum kjarasamninga og hafði fengið Matvís, RSÍ og VM til að fylgja sömu línu. Félagsdómur staðfesti hins vegar að kauptaxtar sem SA hafa birt í kaupgjaldsskrá frá 1. janúar 2026 eru réttir. Enginn ágreiningur var við SGS, Eflingu eða Samiðn um rétta hækkun kauptaxta.
VR hélt því fram að 0,58% kauptaxtaauki, sem kom til framkvæmda 1. apríl 2025, ætti að reiknast ofan á umsamda kauptaxta ársins 2026. Kauptaxtaaukinn var mismunur á hækkun tiltekins viðmiðunarkauptaxta annars vegar og launavísitölu almenna vinnumarkaðarins hins vegar. Á tímabilinu frá nóvember 2023 til nóvember 2024 hafði launavísitalan hækkað meira en kauptaxtar á sama tímabili og því kom til greiðslu kauptaxtaauka sem bættist ofan á kauptaxtana eins og þeir voru í janúar 2025. Það var hins vegar engin grundvöllur fyrir þeirri túlkun VR að þessi sami kauptaxtaauki skyldi reiknast ofan á umsamda 2026 kauptaxta.
SA hafa óskað þess við hluteigandi félög að birtir kauptaxtar verði leiðréttir án tafar.