09. mars 2026

Fullt hús á fundi SA um áhrif tengingar bóta við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld.

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fullt hús á fundi SA um áhrif tengingar bóta við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld.

Fullt hús var á fundi SA um áhrif tengingar bóta við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld sem haldinn var í hádeginu í dag, 9. mars.

Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA opnaði fundinn. „Áhyggjur okkar, og meirihluta þeirra sem gert hafa athugasemdir við frumvarpið, snúa að tvennu. Annars vegar áhrifum þess á ríkisfjármálin með tilheyrandi þrýstingi á verðbólgu og vexti. Hins vegar áhrifum fyrirhugaðrar lagasetningar á vinnumarkaðinn. Við höfum á síðustu árum séð hlutfall þeirra sem lenda í örorku vaxa hratt. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af því að verði frumvarpið að lögum verði komnir hvatar til að vera frekar á örorku en á vinnumarkaði,“ sagði Jón Ólafur í inngangi sínum.

Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs SA tók við og flutti erindi um ríkisfjármál á sjálfstýringu. Hægt er að horfa á erindið hér að neðan.

Oddur Ingimarsson, geðlæknir, rýndi í stöðuna eins og hún er í dag, þar kom fram að um 12% Íslendinga eru á örorku og tók hann einnig dæmi um hlutaörorku og hvernig það getur beinlínis borgað sig fyrir fólk að snúa ekki aftur til vinnu að fullu. Erindi hans er sömuleiðis hægt að horfa á hér að neðan.

Við tók svo líflegt pallborð, en þátttakendur þess voru; Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, Konráð Guðjónsson, hagfræðingur hjá Kontext, Oddur Steinarsson, heimilislæknir og varaformaður Læknafélags Íslands, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. Góðar umræður mynduðust um núverandi stöðu og hvað það þýði fyrir atvinnulífið, hvata til vinnu og framtíðarkynslóðir ef umrætt frumvarp færi í gegn.

Hægt er að horfa á allan fundinn hér að neðan.

Samtök atvinnulífsins