22. apríl 2026

Gagnrýna umfangsmikið eftirlit stjórnvalda

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Gagnrýna umfangsmikið eftirlit stjórnvalda

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hafa skilað umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum sem miðar að því að bregðast við hækkandi eldsneytisverði. Samtökin taka undir markmið stjórnvalda um að milda áhrif verðhækkana á heimili og fyrirtæki og telja tímabundna lækkun virðisaukaskatts geta verið skilvirkt úrræði í því skyni.

Í umsögninni eru þó gerðar alvarlegar athugasemdir við umfang og útfærslu annarra þátta frumvarpsins. Sérstaklega er gagnrýnt að því fylgi víðtækt inngrip í verðmyndun á samkeppnismarkaði og auknar eftirlitsheimildir Samkeppniseftirlitsins. Samtökin telja óljóst hvernig hið sérstaka eftirlit eigi að vera útfært og vara við tvíverknaði í eftirliti þar sem Skatturinn fari nú þegar með eftirlit á skilum virðisaukaskatts.

Þá telja samtökin að þær valdheimildir sem Samkeppniseftirlitinu eru veittar, þar á meðal möguleikinn á stjórnvaldssektum, gangi lengra en nauðsynlegt er. Slíkt geti skapað verulega óvissu fyrir fyrirtæki þar sem verðmyndun ræðst af fjölmörgum þáttum og erfitt sé að leggja einfalt mat á hvort lækkun skili sér að fullu til neytenda.

Samtökin leggjast jafnframt eindregið gegn heimild ráðherra til að setja reglugerð um hámarksverð eða álagningu. Að þeirra mati felur slík heimild í sér grundvallarfrávik frá meginreglum samkeppni og geti haft neikvæð áhrif á framboð, þjónustu og fjárfestingar.

Að lokum gagnrýna samtökin skamman umsagnarfrest og telja að slíkt dragi úr gæðum lagasetningar. Þau hvetja til þess að frumvarpið verði endurskoðað og að markmiðum þess verði náð með vægari og markvissari úrræðum.

Samtök atvinnulífsins