1 MIN
Myndasafn: Hringferð SA hófst í Reykjanesbæ
Hringferð Samtaka atvinnulífsins hófst í gær með vel sóttum vinnufundi á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Þar komu félagsmenn saman, skiptust á reynslu og hlýddu á erindi frá samtökunum. Í tengslum við fundinn voru einnig heimsótt fyrirtækin Algalíf, Bláa Lónið og Grindavík Seafood, sem öll starfa á Reykjanesinu.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá heimsókninni.





















































