23. mars 2026

Norðurslóðastefna verði að endurspegla aðstæður

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Norðurslóðastefna verði að endurspegla aðstæður

Samtök atvinnulífsins, ásamt systursamtökum á Norðurlöndum, hafa lagt fram sameiginlega afstöðu um mikilvægi þess að Evrópusambandið uppfæri norðurslóðastefnu sína frá árinu 2021. Í ljósi aukinnar geópólitískrar spennu og vaxandi samkeppni stórvelda er brýnt að horfa á norðurslóðir sem lykilsvæði fyrir öryggi, efnahagslega seiglu og sjálfbæran vöxt Evrópu.

Í umsögninni er bent á að evrópskar norðurslóðir gegni sífellt stærra hlutverki fyrir varnarmál, orkuöryggi og mikilvægar virðiskeðjur. Svæðið býr yfir auðlindum sem skipta sköpum fyrir græna og stafræna umbreytingu, þar á meðal orku, sjávarafurðum og hráefnum. Jafnframt hefur þar byggst upp öflug atvinnustarfsemi sem tryggir innviði á borð við orkukerfi, fjarskipti og samgöngur.

Atvinnulíf forsenda stöðugleika

Samtökin leggja áherslu á að atvinnulíf og byggð í norðri séu grundvallarforsenda öryggis og stöðugleika. Sterk fyrirtæki og virk samfélög styrkja viðnámsþrótt svæðisins og Evrópu í heild, auk þess að styðja við fullveldi ríkja og viðbúnað gagnvart ógnum.

Þá er kallað eftir aukinni tengingu svæðisins, meðal annars með bættum samgöngum, gagnaflutningskerfum og öðrum lykilinnviðum. Mikilvægt sé að regluverk ESB styðji við slíka þróun og tryggi samkeppnishæfni atvinnulífs án þess að skapa hindranir innan innri markaðarins.

Regluverk taki mið af lykilhlutverki samgangna og tenginga

Samtök atvinnulífsins lögðu áherslu á að regluverk ESB taki mið af lykilhlutverki samgangna og tenginga fyrir eyríki og jaðarsvæði þar sem raunhæfir staðgönguvalkostir eru takmarkaðir. Óhagstæð útfærsla regluverks geti leitt til skekkja innan innri markaðarins, raskað tengingum, stuðlað að tilfærslu á starfsemi, dregið úr samkeppni og grafið undan afhendingaröryggi og viðnámsþrótti jaðarsvæða.

Að lokum leggja samtökin til að ESB styrki fjárfestingar, þekkingu og samstarf á norðurslóðum í nánu samráði við heimamenn og fyrirtæki. Með því megi tryggja sjálfbæra þróun, aukið öryggi og efnahagslegan ávinning fyrir Evrópu í heild.

Samtök atvinnulífsins