1 MIN
SA fagna afhúðun
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Frumvarpið felur í sér þrjár meginbreytingar: að stærðarmörk fyrirtækja verði miðuð við reglur Evrópusambandsins í stað EES-reglna, að skilafrestir ársreikninga taki breytingum og að innleidd verði ESB-tilskipun um upplýsingagjöf stórra fyrirtækja.
SA telja það mikilvægt framfaraskref að taka upp stærðarflokkun ESB. Smærri fyrirtæki hér á landi hafa um árabil sætt þyngri kvöðum en sambærileg fyrirtæki í Evrópu vegna svonefndrar gullhúðunar við innleiðingu EES-reglna. Samtökin fagna því að stjórnvöld sýni frumkvæði til afhúðunar og bæti þannig samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Samtökin leggja ríka áherslu á að tryggt verði fullt samræmi í stærðarflokkunum þvert á lagabálka og eftirlitsaðila. Óásættanlegt sé að fyrirtæki geti fallið í ólíka stærðarflokka eftir því hvaða reglur eigi við, enda auki slíkt flækjustig og eftirlitsbyrði.
SA styðja að smærri fyrirtæki fái lengri frest til skilanna en kalla eftir gögnum um raunverulega skilatíma áður en metið er hvort styttri frestur stærri fyrirtækja sé íþyngjandi. Þá er lögð áhersla á skýra skilgreiningu á hugtakinu „kerfislega mikilvægt“ fyrirtæki og að viðmiðunarfjárhæðir verði endurskoðaðar reglulega, að minnsta kosti á tveggja ára fresti.
Við innleiðingu nýrrar upplýsingaskyldu verði gætt meðalhófs þannig að ekki skapist samkeppnishalli eða óþarfa ímyndaráhætta fyrir íslensk fyrirtæki.