24. júní 2026

Frosnar væntingar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Frosnar væntingar

Reglubundin könnun Seðlabanka Íslands og Samtaka atvinnulífsins um stöðu og horfur í efnahagslífinu meðal stærstu fyrirtækja landsins var gerð á tímabilinu 11. maí til 18. júní. Vísitala efnahagslífsins lækkar í 14 stig í júní, var 30 stig í mars, og versnar því mat stjórnenda enn milli kannana. Aðeins um 5% stjórnenda telja aðstæður í efnahagslífinu góðar, en um 64% telja þær slæmar.

Útlitið er örlítið skárra þegar horft var til væntinga sex mánuði fram í tímann þar sem vísitalan mældist 35.

Spennan mælist áfram lítil

Skortur á starfsfólki heldur áfram að minnka eftir að hafa náð hámarki á árinu 2022, en aðeins um 15% stjórnenda telja skort á starfsfólki í sínu fyrirtæki um þessar mundir. Um 12% stjórnenda telja að starfsmönnum innan sinna fyrirtækja muni fjölga á næstu sex mánuðum. Á móti telja um 27% svarenda að starfsfólki muni fækka innan þeirra fyrirtækja á næstu sex mánuðum.

Þá hafa horfur um eftirspurn einnig gefið eftir en vísitölur innlendrar (80) sem og erlendrar eftirspurnar (91) eru nú báðar undir 100 stigum sem þýðir að meirihluti svarenda á von á því að bæði innlend og erlend eftirpurn komi til með að dragast saman á næstu sex mánuðum, í fyrsta skipti frá haustinu 2020.

Samtök atvinnulífsins