08. júní 2026

Vernda landaheitið Ísland/Iceland

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Vernda landaheitið Ísland/Iceland

Samkomulag um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland/Iceland hefur verið undirritað. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu á erlendum mörkuðum. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins ásamt því að annast verkefnastjórn á samstarfinu.

„Það er Íslandi mjög mikilvægt að við verndum áfram okkar dýrmæta landaheiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki misnotað. Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess fullviss að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs.“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. Með samkomulaginu verður til sameiginlegt verklag til að fylgjast með notkun landaheitisins erlendis og bregðast við þegar notkunin kann að ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings.

Verulegt efnahagslegt gildi

„Landaheitið Ísland hefur verulegt efnahagslegt gildi fyrir íslenskt atvinnulíf. Árangur fjölmargra fyrirtækja á erlendum mörkuðum byggir að hluta til á þeim jákvæðu tengslum sem neytendur hafa við landið. Það er því mikilvægt að standa vörð um landaheitið og tryggja að notkun þess styðji við samkeppnishæfni og verðmætasköpun íslensks útflutnings,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Samhliða hinu formlega samstarfi um vöktun munu stjórnvöld áfram beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að landaheiti verði almennt ekki einkavædd í vörumerkjarétti.

Vöktun styrkt enn frekar

Vöktun fer annars vegar fram með vöktun vörumerkjaskráninga erlendis sem innihalda Ísland/Iceland eða tengd heiti og hins vegar með vefgátt á heimasíðu Íslandsstofu þar sem almenningur, fyrirtæki og stofnanir geta sent inn ábendingar um mögulega misnotkun landaheitisins erlendis.

„Það er mjög verðmætt að fá að kenna sig við Ísland. Reynslan hefur kennt okkur að það getur verið dýrkeypt að standa ekki vörð um landaheitið. Styrkleiki þess gerir það eftirsótt til notkunar, bæði hjá þeim sem eiga rétt til slíkrar notkunar og þeirra sem eiga það ekki. Við byggjum á reynslu liðinna áratuga og styrkjum enn frekar vöktunina í markvissu samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs,“ segir Pétur Þorsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Þegar mál kemur upp, hvort sem það er vegna vöktunar eða ábendingar, verður metið hvort ástæða sé til að bregðast við og með hvaða hætti. Ef tilefni þykir til verður umsækjanda eða notanda sent formlegt erindi þar sem óskað er skýringa á tengingu við íslenskan uppruna. Ef notkun telst ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings geta aðilar samkomulagsins gripið til frekari aðgerða í samræmi við sameiginlegt verklag.

Í því felst að upplýsa þá sem hagsmuna hafa að gæta af því að verjast misnotkuninni svo þeir geti fylgt málinu eftir með viðeigandi hætti. Með samstarfinu og fyrstu aðgerðum vill samstarfshópurinn hins vegar stöðva slík mál á fyrstu stigum og þannig minnka þann kostnað sem ella þarf að fara í að verjast. Vefgátt ábendinga á íslensku og ensku má finna á heimasíðu Íslandsstofu:

Ábendingar um misnotkun landaheitisins Iceland / Ísland

Reporting on misuse of the country name Iceland

Samtök atvinnulífsins