1 MIN
Yfirgnæfandi stuðningur við aukna samvinnu
Ný viðhorfskönnun Maskínu fyrir Samtök atvinnulífsins sýnir að almenningur telur mikilvægt að atvinnulíf, launafólk og stjórnvöld vinni saman að því að ná aftur meiri stöðugleika í íslensku hagkerfi. Könnunin staðfestir ennfremur að almenningur hefur miklar áhyggjur af verðbólgu.
Samkvæmt könnuninni hafa nærri sjö af hverjum tíu miklar áhyggjur af verðbólgu og níu af hverjum tíu segja hana hafa neikvæð áhrif á heimilisbókhaldið.
„Niðurstöðurnar sýna mjög skýrt að fólk finnur fyrir áhrifum verðbólgunnar í daglegu lífi og vill sjá meiri samvinnu og ábyrgð í efnahagsmálum,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Það er mikilvægt að við nálgumst þetta verkefni sem sameiginlega áskorun. Verðbólga verður ekki leyst af einum aðila heldur með samstilltu átaki þar sem atvinnulíf, stjórnvöld og launafólk vinna í sömu átt.“
Almenningur meðvitaður um áhrif verðbólgu á heimilin
Könnunin sýnir jafnframt að verðbólga hefur djúp áhrif á fjárhagslegt öryggi heimila. Um 90% landsmanna segja verðbólgu hafa neikvæð áhrif á heimilisbókhaldið.
Bjarni segir niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að byggja upp meiri fyrirsjáanleika og traust í efnahagsmálum.
„Þegar verðbólga festist í sessi hefur það áhrif á væntingar heimila, fyrirtækja og markaða. Þá verður erfiðara að ná niður vöxtum og skapa stöðugleika. Þess vegna skiptir máli að við vinnum saman að því að rjúfa vítahringinn.“
Tenging lífsgæða við öflugt atvinnulíf skýr
Könnunin sýnir einnig að almenningur tengir öflugt atvinnulíf sterkt við lífsgæði á Íslandi. Tæplega níu af hverjum tíu telja öflugt atvinnulíf lykilforsendu betri lífsgæða.
Rjúfum vítahringinn
Hringferð SA 2026 „Rjúfum vítahringinn“ hófst síðasta þriðjudag með fundi á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Hún heldur áfram í næstu viku með fundum á Egilsstöðum, Akureyri og Akranesi.
„Markmið hringferðarinnar er að skapa vettvang fyrir opið og uppbyggilegt samtal um hvernig við náum aftur meiri stöðugleika í íslensku samfélagi. Við þurfum ekki að vera sammála um allt en við verðum að standa saman um það sem skiptir mestu máli. Fyrir heimili og fyrirtæki er það að rjúfa vítahring verðbólgu,“ segir Bjarni.